Hæ! Ég heiti María, er 24 ára gömul steingeit og ég bý á Akureyri. Dagsdaglega stunda ég nám í hjúkrunarfræði við Háskólann á Akureyri, nánar tiltekið á þriðja ári af fjórum. Ég bý í foreldrahúsum og er stök. Ég hef gaman af allskonar hlutum, má þar nefna að vera með kostulegu vinunum mínum, lesa, hlusta á tónlist, horfa á ýmiskonar sjónræna afþreyingu, teikna, fara í ræktina, taka myndir á digital græjuna mína, vesenast í tölvunni, dýr (sérstaklega fuglar), ferðast, vera úti og margt fleira.
Hér má finna frásagnir af lífi mínu ásamt hugsunum mínum, draumum, vonum og vonbrigðum. Þetta er fyrst og fremst skráð niður fyrir sjálfa mig en ef þú hefur gaman af því sem hér má finna þá ertu að sjálfsögðu velkomin/n í heimsókn sem oftast :-)
|
|
|
 |
|
Sunday, February 26, 2006
Jáhá...
Ég held, svei mér þá, að ég sé bara hætt að blogga í bili! Ég nenni svo sjaldan að uppfæra þetta.. alveg eins gott að sleppa því bara þar til áhuginn vaknar aftur... Ég læt ykkur vita ef og þegar það gerist :P
En svona að lokum, þá gengur bara allt vel hjá mér, var að klára verknámið á bæklunardeild og þótt það hafi nú ekki alveg verið skemmtilegasta deild í heimi þá fékk ég góða umsögn :P Svo er það bara skólinn á morgun!
Þyngdartapið er líka að ganga fínt, er að takast vel að halda mig frá vigtinni þar sem ég ætla ekki að verða alveg obsessed á henni ;) En ég er alltaf að komast í ný og ný föt og svona.. aðeins farin að glotta í spegilinn aftur þannig að þetta er allt á réttri leið! Er líka búin að kaupa mér kort á Bjargi og orðin ágætlega dugleg í að fara út að labba :)
En allavega, bið að heilsa í bili! :)
Posted at 01:04 pm by Mæja
Permalink
Friday, February 03, 2006
Búin í aðgerð - gekk mjög vel, hef ekki tekið verkjalyf síðan áður en ég útskrifaðist af spítalanum og er að verða búin á maukfæði :P Hef lést um ca 10 kg.. veit ekki alveg nákvæmlega :P En það er fínt á mánuði he he :D
Var að koma heim til Akureyrar eftir 2ja vikna verknám á barnadeild BUGL, það var skemmtilegt og fróðlegt! Fékk fína umsögn líka, sem skemmir ekki :) Svo byrjar 3ja vikna tímabil á bæklunardeild á mánudag...
Er að plana flutning í borgina aftur, er búin að fá vinnu á sængurkvennadeild LSH í sumar og hlakka mikið til að byrja að vinna...
Já.. og lagið frá henni Sylvíu Nótt er kúl!!! Hætta að tuða yfir þessu....
http://www.flurl.com/uploaded/Eurovision_lagid_55040.html
Jæja, þá er ég búin með eitt hraðblogg.. skrifa meira einhverntíma seinna :)
Posted at 10:34 pm by Mæja
Permalink
Monday, January 02, 2006
Ég ætla nú að byrja á því að óska ykkur öllum gleðilegs nýs árs og þakka fyrir þau samskipti sem ég hef átt við ykkur á árinu, held þau séu nú flest góð 
Ég tók á móti nýja árinu hérna heima að sjálfsögðu og svo fórum við Ólöf í heimsókn til Lovísu (sem er by the way að fara í aðgerð 6. janúar ). Þær LÉTU mig horfa á einn þátt af Angel en svo fórum við í Buzz sem er alveg snilldar spurningaleikur um tónlist í playstation 2. Ég fór ekki í rúmið fyrr en um 6 leytið, alveg agalegt en þetta var mjög gaman. Ég á eftir að sakna Ollu minnar þegar ég fer suður 
Tíminn hefur eiginlega liðið hraðar en ég átti von á, mér finnst ekki svo langt síðan ég setti teljarann efst á síðuna mína sem sagði að það væri mánuður og tvær vikur í aðgerðina. Núna má eiginlega segja að hún sé á morgun, svona fyrst að það er komið fram yfir miðnætti 
Ég er mjög spennt og pínu kvíðin en samt mest yfir því að eitthvað komi uppá þannig að aðgerðin verði ekki.. skurðlæknirinn verði veðurtepptur eða eitthvað álíka!
Við mamma ætlum að taka fyrstu vél suður í fyrramálið svo að ég komist í innritunarviðtalið mitt kl 10. Svo er aðgerðardagurinn sjálfur þar á eftir. Ef allt gengur vel verð ég á spítalanum í svona 3-4 daga og svo á Rauðarárstígnum í rúma viku eftir það. Öll skemmtileg sms og símtöl eru auðvitað vel þegin, tala nú ekki um heimsóknir. En ég veit að þið hugsið öll vel til mín 
Bestu kveðjur frá Mæju aðgerðarstelpu sem lætur heyra í sér aftur þegar hún er orðin loser (upp á amerískuna )
Posted at 12:30 am by Mæja
Permalink
Sunday, December 25, 2005
Ég er allavega alveg að njóta jólanna í tætlur :P
Ég fékk fullt af góðum gjöfum, til dæmis:
- Geggjað flott úr
- Gönguskó
- Ótrúlega gott ilmvatn
- Rúmföt
- Hálsfesti
- Intensive Care með Robbie vini mínum Williams
- Skyrtu, pils og tvo langerma boli (of lítið eins og ég óskaði mér svo að ég geti hlakkað til að passa í það eftir einhverjar vikur ;P)
- Rosa fínt body lotion
- Dót í herbergið mitt
- Bleikt handklæði merkt mér
- Ullarsokka OG nætursokka :P
Ég get semsagt ekkert kvartað! Svo á ég auðvitað ammli eftir minna en tvær vikur.. þá er hægt að redda því sem ég fékk ekki í jólagjöf ;)
Fyrir jólin fór ég í mína fyrstu professional augnabrúnaplokkun :P Það var ferlega næs, svo fór ég líka í klippingu (sem ég var alltaf að fresta og fresta...) Það munar ótrúlega um að klippa ljótu endana af og setja smá styttur :P
Svo eru bara 9 dagar í aðgerð.. spennandi.. mjög spennandi ;)
Jæja, ég vona að þið hafið það eins gott og ég um hátíðarnar, bestu jólakveðjur :) 
Posted at 04:10 pm by Mæja
Permalink
Friday, December 16, 2005
Klukkan 11:50 í dag komst ég í mitt langþráða jólafrí :D Ótrúlegt að þessi mikla löngun sem ég er búin að hafa síðustu tvær vikur eða svo til að laga til í herberginu mínu hvarf eiginlega bara á sömu mínútunni.. viss um að það er bara tilviljun :D
Heilt yfir hafa prófin gengið alveg sæmilega, svona miðað við allt, og hefst nú bara biðin mikla og tímabil tíðra heimsókna á unak.is-stefanía-einkunnir misseris ;)
Ég gerði nú ekkert sérstakt til að fagna próflokum nema ef til vill að fara í bólusetningu við hettusótt í hádeginu með Daðeyju. Við fengum okkur svo ferlega gott crépes í Blómavali, það var bara svo matarmikið að ég gat ekki klárað og það þarf sko slatta til! :P
Kolla systir skutlaði mér í prófið í dag og þegar ég var á leiðinni út úr bílnum þá rak hún augun í eitthvað sem var fast á rassinum á mér, og viti menn, það var lakkrísbiti! :-o Ég var bara fegin að hún tók eftir honum, veit ekki annars hvora skýringuna ég hefði notað; annars vegar að þetta væri prófnestið mitt og hins vegar að ég væri hætt að nenna að borða nammið, farin að setja það bara beint á rassinn þar sem það endar hvort sem er ;)
Jæja, best að skella sér í sturtu og undir sæng!  Currently listening to: B-SidesBy Damien Rice
Posted at 12:03 am by Mæja
Permalink
Monday, December 12, 2005
Ég var svo ótrúlega sniðug að taka tónleikana hans Robbie Williams upp í kvöld og nú get ég horft á hann hvenær - sem - ég - vil! ;D Mér skilst að það sé ekki raunhæft að stefna að því að gera hann að hr Mæju þannig að þetta verður bara að duga í bili ;) Það er ógeðslega flott svona mannshæðarhá Robbie pappafígúra í Bókval á Glerártorgi sem ég er búin að girnast lengi. Ákvað svo að spyrja um hana síðast þegar ég var þar (þrátt fyrir að hneyksla Ólöfu mína algjörlega uppúr skónum) en þá var búið að lofa henni annað :( Já ég er sjúk en ég hefði sko pottþétt haft hana í herberginu mínu :D
Ég horfði annars á Rockstar: INXS í kvöld að venju, þetta er bara orðinn uppáhaldsveruleikaþátturinn minn :P Mig Ayesa og Jordis Unga eru í mestu uppáhaldi hjá mér þótt Ty Taylor sé ferlega flottur líka :P Ég þoli hins vegar ekki J.D. Fortune. Ég komst að því um daginn, alveg óvart, hver vinnur og það er pínu fúlt að vita það. En góðir þættir engu að síður, eins og ædolið nema bara betri tónlist og flottari sviðsframkoma ;)
Annars er ég bara í prófum, búin í tveimur (sem gengu svona alveg sæmilega) og á tvö eftir. Geðhjúkrun og hjúkrun fullorðinna I. Á fimmtudag er ég svo komin í jólafrí sem verður ákaflega ljúft!
Það styttist óðum í aðgerðardag, aðeins rétt rúmar 3 vikur! Ég er búin að fá íbúð í Rvk ca fram í miðjan janúar. Ég fer svo væntanlega heim í einhverja daga en kem aftur þar sem að verknámið mitt byrjar 23. janúar en ekki 16. eins og ég hélt. Þetta þýðir bara meiri tíma fyrir mig til að jafna mig sem er alveg hið besta mál :)
PS - Ég sá í Hagkaup um daginn svona græju til að losna við hárin á löppunum, heitir Silkymit og er nokkurskonar sandpappír! Ég hló og hneykslaðist á þessu.. eeen.. varð auðvitað að kaupa þetta og prófa næst þegar ég fór í Hagkaup. Ótrúlegt en satt þá virkar þetta alveg ágætlega! Mæli alveg með að prófa þetta, kostar ekkert mikið heldur.. eitthvað rúmlega 300 kr.. en það er samt örugglega hægt að fá ódýrari sandpappír í húsasmiðjunni ;)

Posted at 12:46 am by Mæja
Permalink
Friday, November 18, 2005
Jæja, þá eru 3 vikur á Kristnesi búnar og tvær eftir. Þetta er búið að vera alveg ofsalega fínt og rosalega fljótt að líða! Nú fara bara að nálgast próf og sumir *hóst* þurfa víst að fara að líta í námsbækurnar...
En það er helst í fréttum að ég er búin að fá aðgerðardag, hann er 3. janúar '06, innritun á LSH 2. janúar kl 9 þannig að ég þarf helst að koma mér suður á nýársdag. Mamma ætlar víst að koma með mér og vera hjá mér svona fyrstu dagana sem verður mjög fínt. Ég vildi alveg endilega komast að fyrir jól en það var víst ekki hægt nema að ég verði innkölluð með mjög stuttum fyrirvara.. það kemur bara í ljós en svosem ekki mjög líklegt. Þetta leggst voða vel í mig og ég hlakka bara til :)
Helgin verður væntanlega bara róleg og ég ætla að reyna að læra eitthvað oggulítið.. við Lovísa ætlum að sjá Exorcism of Emily Rose í kvöld, vona að það sé eitthvað varið í hana :P
Kveð með krúttilegri mynd af Viggó að klifra í púðunum á rúminu mínu :)
Posted at 06:56 pm by Mæja
Permalink
Monday, November 14, 2005
Posted at 07:31 pm by Mæja
Permalink
Tuesday, November 08, 2005
- Hvað er klukkan? 00:39
- Hvaða nafn er á fæðingarvottorðinu þínu? María Guðmundsdóttir
- Hvað ertu kölluð/kallaður? Mæja
- Hvað voru mörg kerti á síðustu afmæliskökunni þinni? Engin kaka, humm humm!
- Hár? Brúnt og orðið óttalegur lubbi
- Göt? Í sitthvoru eyra
- Fæðingarstaður? Akranes
- Hvar býrðu? Sunnuhlíð 13
- Uppáhaldsmatur? Kjúklingur :P
- Einhvern tíma elskað einhvern svo mikið að það fékk þig til að gráta? Hmm, nei ætli það
- Gulrót eða beikonbitar? Gulrót er miklu betri
- Uppáhalds vikudagur? Laugardagur
- Uppáhalds veitingastaður? Enginn sérstakur
- Uppáhalds blóm? Ég er voðalega hrifin af íslensku villiblómunum, sóleyjum, fíflum og því :)
- Uppáhalds drykkur? Vatn
- Disney eða Warner brothers? Disney
- Uppáhalds skyndibitastaðurinn? BK kjúklingur svei mér þá
- Hvernig er teppið í svefnherberginu á litinn? Ekkert teppi, parket bara
- Hver var síðastur til að senda þér tölvupóst? Tobbi
- Í hvaða búð mundir þú vilja botna heimildina á kreditkortinu? Hmm, á ekkert kreditkort, en H&M kæmi sterklega til greina :P
- Hvað gerir þú oftast þegar þér leiðist? Hangi í tölvunni
- Hvaða spurning sem þú færð fer mest í taugarnar á þér? Veit ekki...
- Hvenær ferðu að sofa? Um miðnættið oftast
- Hver verður fyrstur til að svara þér þessu? Ekki hugmynd...
- Hver af þeim sem þú biður um að svara þessu er líklegastur til að svara ekki? Veit ekki...
- Uppáhalds sjónvarpsþáttur? Úff, þessi er erfið, America's next top model, So you think you can dance, Lost, Desperate Housewives, Ædolið.. svo margir ;)
- Með hverjum fórstu síðast út að borða? Humm, ætli það hafi ekki verið á Pengs með Ólöfu vinkonu
- Ford eða Chevy? Ford
- Hvað varstu lengi að klára að svara þessu? 8 mínútur
Klukk á Hugborgu, Daðeyju og Dodda :)
Posted at 12:48 am by Mæja
Permalink
Tuesday, November 01, 2005
Ég kláraði vikurnar þrjár á lyfjadeildinni á föstudag og fékk bara mjög góða umsögn. Eftir dvölina á Neskaupstað í vor þá fékk ég líka fína umsögn en var bent á að vera aðeins framtakssamari og öruggari með mig. Ég skrifaði það semsagt í markmiðin mín fyrir þetta verknám að vinna í þessum málum og það tókst víst bara mjög vel :) Það er alveg ferlega gaman að fá staðfestingu á að maður sé alveg sæmilega góður í því sem maður hefur áhuga á að vinna við!
Þessa dagana er ég í prógrammi á Kristnesi og verð það næstu 5 vikur. Hreyfing, slökun, matreiðsla, fræðsla og fleira skemmtilegt, allt til að hjálpa mér í baráttunni við fitupúkann. Planið er svo að fara í hjáveituaðgerð á maga 19. desember, ef allt gengur upp. Ég byrjaði nú bara í gær en þetta leggst mjög vel í mig. Í dag prufaði ég til dæmis vatnsleikfimi í fyrsta skipti, það var sko hoppað, skoppað, hlaupið og spriklað, ég skemmti mér allavega mjög vel :) Það versta er bara að ég náði mér í vatn í eyrað sem er að angra mig töluvert og það vill ekki út! :-s
Annars er ég bara þægilega þreytt og syfjuð.. stefni að því að fara snemma í bólið í kvöld! :)
Posted at 06:52 pm by Mæja
Permalink
|
|
|